Ástandsskoðun Dr. BÆK
Vorið er uppáhaldstími Dr. BÆK. Hjólin streyma úr vetrarhíðum og allir vilja hafa hjólið sitt í góðu standi. Þá er tilvalið að fá Dr. BÆK með tækin sín og tól á hjóladag í skólanum, á vorhátíðina nú eða til að ástandsskoða reiðhjól starfsmanna á vinnustöðum.
Dr. Bæk mætir með tæki og tól og leiðbeinir um helstu vorverk hjólreiðamannsins með sýnikennslu og óformlegum fyrirlestri við reiðhjól. Hentar minni hópum. Sýnd er þrif og stilling á stelli, bremsum og gírum og spurningum svarað.
Á vinnustöðum setjum við upp tímaskema þar sem starfsmenn skrá sig í stutta vitjun hjá doktornum með hjólið sitt, svo allt á að ganga þægilega og smurt innan vinnutímans.
Fyrirlestrar
Um árabil hefur Hjólafærni á Íslandi boðið fram skemmtilega og fræðandi fyrirlestra sem snerta hjólamenningu. Vinsælasti fyrirlesturinn okkar frá upphafi heitir Samgönguhjólreiðar, hugarfar og menning. Hann passar einkar vel með léttum hádegisverði á vinnustöðum, á kvöldfund félagasamtaka eða til kennslu í framhaldsskólum. Fjölmargir aðrir fyrirlestrar eru einnig í boði:
- Samgönguhjólreiðar, hugarfar og menning.
- Óbyggðirnar kalla og suður Jakobsstíginn.
- Reiðhjólið.
- Leiðsögn Dr. Bæk.
- Lagarammi um hjólreiðar.
Námskeið Hjólafærni; hagnýt, fræðandi og skemmtileg
Við leggjum okkur fram um að skapa námskeið sem hentar hverjum og einum.Hjólafærni kemur með öll tæki og tól þangað sem þess er óskað.
Hjólum og verum klár!
Fyrirlestur og grunnviðgerðir.
Grunnnámskeið í viðgerðum og viðhaldi.
Ítarlegt grunnnámskeið í hjólaviðgerðum.
Hjólum og njótum á öllum aldri.
Upplifðu leyndardóma hjólreiðanna.
1 - 2 og læra!
Þriggja stöðva hraðleiðsögn í hjólaviðgerðum á 2 tímum.
Ráðgjöf og vottun
Hjólafærni býður skólum, vinnustöðum og ferðamannastöðum að vinna með þeim vottun um hjólavæni.
Vinnustaðavottun
Hjólafærni bendir á lausnir um það sem betur má fara og veitir einnig ráðgjöf um gerð samgöngustefnu og samgöngusamninga.
Grunnskólavottun
Ráðgjafar Hjólafærni skoða umhverfi grunnskóla með starfsmönnum skóla eða sveitarfélaga. Aðstaðan fyrir þá sem koma á reiðhjólum er metin og tillögur að hjólahvetjandi umhverfi, verkefni og skipulag lagðar fram.
Hjólavænn ferðamannastaður
Gistiheimili, tjaldstæði og áningarstaðir ferðamanna geta óskað eftir hjólavænni vottun.
Starfsfólk Hjólafærni
Hér sést aðeins hluti þess góða fólks sem starfar fyrir Hjólafærni; starfsfólk.
Sesselja Traustadóttir
Framkvæmdastýra HjólafærniÁrni Davíðsson
Darri Mikaelsson
Birgir Birgisson
Haukur Eggertsson
Örlygur Sigurjónsson
Nýjustu fréttir og pistlar
Hversu hjólafært er þitt nágrenni?
Það er gaman að hjóla. Hjólreiðar eru ákjósanlegt samgöngutæki og leið til að fá næga hreyfingu...
Hæ! Hó! með hælisleitendum
Hjólafærni er í samvinnu við Rauða krossinn við að gera upp gömul reiðhjól með hælisleitendum....
Hjólaferðir veturinn 2017 - 2018
Í vetur verða farnar hjólreiðaferðir á laugardagsmorgnum eins og fyrri vetur. Að þeim standa...
Hjólað óháð aldri blómstrar um allt land
Hjólafærni á Íslandi, undir stjórn framkvæmdastýrunnar Sesselju Traustadóttur, hefur haldið utan...
Týndi hlekkurinn; töfrandi rafmagnsreiðhjól!
Ég kláraði fyrri helminginn á dögunum og bóndinn tók uppá því að gefa mér rafmagnsreiðhjól. Og...
Víkjandi eða ríkjandi staða?
Það er frábært við hjólreiðar á Íslandi að við erum velkomnir gestir á gangstéttum. Fyrirmyndar...