Karíbahaf
Karíbahaf [1], Karabíska hafið eða Vestur-Indíur er haf sem afmarkað er af norðurströnd Suður-Ameríku, Atlantshafinu, Litlu-Antillaeyjum, Stóru-Antillaeyjum, Mexíkóflóa og Mið-Ameríku.
Flatarmál þess er um 2.754.000 km², dýpsti punktur þess er Kaímangjáin milli Kúbu og Jamaíku sem er 7.500 m undir sjávarmáli. Í því eru ekki færri en 7000 eyjar og hafinu er skipt í 25 yfirráðasvæði sem ýmist eru sjálfstæð ríki eða hlutar annarra ríkja.
Saga
breytaStórveldi Evrópu lögðu svæðið undir sig á 16. og 17. öld og börðust einnig innbyrðis um yfirráð. Eyjunum var þannig skipt í yfirráðasvæði sem nefndust spænsku Vestur-Indíur, bresku Vestur-Indíur, dönsku Vestur-Indíur, frönsku Vestur-Indíur og hollensku Vestur-Indíur, en mörk þessara svæða gátu verið breytileg eftir stríðsgæfu viðkomandi nýlenduveldis.
Tíð átök nýlenduveldanna og veikburða stjórn þeirra á svæðinu, auk þess sem Spánn flutti reglulega um hafið stóra skipsfarma af góðmálmum og eðalsteinum frá hinu mikla nýlenduveldi sínu í Suður-Ameríku, gerði það að verkum að Karíbahafið varð draumastaður sjóræningja fram á 18. öld.
Orðsifjar
breytaHafið dregur nafn sitt af Karíbum, indíánum sem bjuggu á eyjunni Hispaníóla þegar Kristófer Kólumbus kom þangað árið 1492, en Kólumbus sjálfur gaf svæðinu nafnið Vestur-Indíur.
Yfirráðasvæði í Karíbahafi
breyta- Angvilla
- Antígva og Barbúda
- Arúba
- Bahamaeyjar
- Bandarísku Jómfrúreyjar
- Barbados
- Bresku Jómfrúreyjar
- Dóminíka
- Grenada
- Guadeloupe
- Hispaníóla
- Hollensku Antillaeyjar
- Jamaíka
- Caymaneyjar
- Kúba
- Martinique
- Mexíkó
- Montserrat
- Navassaeyja
- Púertó Ríkó
- Sankti Kristófer og Nevis
- Sankti Lúsía
- Sankti Vinsent og Grenadíneyjar
- Trínidad og Tóbagó
- Turks- og Caicoseyjar