(Translated by https://www.hiragana.jp/)
Tim Walz - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið

Tim Walz

bandarískur stjórnmálamaður

Timothy James Walz (f. 6. apríl 1964) er bandarískur stjórnmálamaður, fyrrum kennari og fyrrum hermaður sem að hefur gegnt embætti fylkisstjóra Minnesota frá árinu 2019 fyrir Demókrataflokkinn.[1] Tim verður varaforsetaefni Kamölu Harris í forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2024, sem að munu fara fram þann 5. nóvember næstkomandi.

Tim Walz
Fylkisstjóri Minnesota
Núverandi
Tók við embætti
7. janúar 2019
VararíkisstjóriPeggy Flanagan
ForveriMark Dayton
Fulltrúadeildarþingmaður fyrir 1. kjördæmi Minnesota
Í embætti
3. janúar 2007 – 3. janúar 2019
ForveriGil Gutknecht
EftirmaðurJim Hagedorn
Persónulegar upplýsingar
Fæddur6. apríl 1964 (1964-04-06) (60 ára)
West Point, Nebraska, Bandaríkin
StjórnmálaflokkurDemókrataflokkurinn
MakiGwen Whipple (g. 1994)
StarfStjórnmálamaður, hermaður, kennari
Undirskrift

Tim var hermaður fyrir Bandaríkjaher á árunum 1981 til 2005 áður en að hann sneri sér að stjórnmálum. Hann bauð sig fram sem fulltrúardeildarþingmaður fyrir Minnesota í þingkosningunum 2006 þar sem að hann náði hann kjöri og tók við embætti 3. janúar 2007. Árið 2018 tilkynnti Tim að hann myndi ekki gefa kost á sér á ný í þingkosningunum 2018 og að hann myndi frekar bjóða sig fram í embætti fylkisstjóra Minnesota. Tim vann sigur í fylkistjórakosningunum árið 2018 og náði endurkjöri í kosningum 2022. Hann lét af embætti sem fulltrúardeildarþingmaður þann 3. janúar 2019 og tók við embætti fylkisstjóra Minnesota 7. janúar 2019. Þann 6. ágúst 2024 tilkynnti Kamala Harris að hann myndi vera varaforsetaefni hennar í forsetakosningunum sama ár.[2]

Tilvísanir

breyta
  1. „Hver er Tim Walz?“. mbl.is. 6. ágúst 2024. Sótt 6. ágúst 2024.
  2. Ragnar Jón Hrólfsson (6. ágúst 2024). „Kamala Harris velur Tim Walz sem varaforsetaefni“. Vísir. Sótt 6. ágúst 2024.