(Translated by https://www.hiragana.jp/)
Derek Walcott - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Derek Walcott

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 7. júní 2009 kl. 13:33 eftir 89.160.147.231 (spjall) Útgáfa frá 7. júní 2009 kl. 13:33 eftir 89.160.147.231 (spjall)
Derek Walcott í Amsterdam 20. maí 2008

Derek Alton Walcott (23. janúar 1930) er eitt helsta ljóðskáld enskrar tungu á ofanverðri 20. öld. Hann er einnig leikritahöfundur, leikstjóri og hefur auk þess getið sér gott orð sem listmálari. Derek hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1992. Þekktustu verk hans eru hið epíska ljóð Omeros, sem er yfir 300 blaðsíður, ljóðabækurnar The Star-Apple Kingdom og Another Life, sem fjallar um æsku hans á Sankti Lúsíu. Robert Graves sagði á sjöunda áratugnum um Derek Walcott að hann beitti enskunni af meiri skilningi á innri töfrum hennar en flestir (ef ekki allir) samtímamenn hans. [1] [2]

Æska

Derek Walcott fæddist í Castries á Sankti Lúsíu í Karíbahafi og er tvíburabróðir Rodericks (1930-2000), sem var leikritaskáld á Sankti Lúsíu og í Kanada. Faðir þeirra, Warwick, var opinber starfsmaður og lést þegar bræðurnir voru eins árs, en móðirinn, Alix, var kennari í Meþódistaskóla. Báðir afar Walcottsbræðrana voru hvítir Evrópumenn, en báðar ömmur þeirra voru af afrísku bergi brotnar og komnar af þrælum.

Árið 1949 fór Dereck í framhaldsnám til Jamaíku, Háskóla Vesturíndíu í Kingston, og nam þar ensku, frönsku og latínu. Derek stofnaði Trinidad Theater Workshop á eyjunni Trínidad tíu árum seinna, en þar frumsýndi hann leikverk sín á árum áður. Derek kenndi skapandi skrif við Boston háskólann (BU) til ársins 2007. Eftir að hann hætti þar hefur hann ferðast um og haldið fyrirlestra og komið fram á ljóðaupplestrum. Árið 2009 sóttist hann eftir stöðu í Oxford (sem Oxford Professor of Poetry), en dró umsókn sína tilbaka þegar upp kom staðhæfing þess efnis að hann hafði verið sakaður um kynferðislega áreitni í Boston.

Ljóðabækur

  • (1948) 25 Poems
  • (1949) Epitaph for the Young: Xll Cantos
  • (1951) Poems
  • (1962) In a Green Night: Poems 1948–60
  • (1964) Selected Poems
  • (1965) The Castaway and Other Poems
  • (1969) The Gulf and Other Poems
  • (1973) Another Life
  • (1976) Sea Grapes
  • (1979) The Star-Apple Kingdom
  • (1981) Selected Poetry
  • (1981) The Fortunate Traveller
  • (1983) The Caribbean Poetry of Derek Walcott and the Art of Romare Bearden
  • (1984) Midsummer
  • (1986) Collected Poems, 1948-1984
  • (1987) The Arkansas Testament
  • (1990) Omeros
  • (1997) The Bounty
  • (2000) Tiepolo's Hound
  • (2004) The Prodigal
  • (2007) Selected Poems
  • óútkomin White Egrets

Leikrit

  • (1950) Henri Christophe: A Chronicle in Seven Scenes
  • (1951) Harry Dernier: A Play for Radio Production
  • (1953) Wine of the Country
  • (1954) The Sea at Dauphin: A Play in One Act
  • (1957) Ione
  • (1958) Drums and Colours: An Epic Drama
  • (1958) Ti-Jean and His Brothers
  • (1966) Malcochon: or, Six in the Rain
  • (1967) Dream on Monkey Mountain
  • (1970) In a Fine Castle
  • (1974) The Joker of Seville
  • (1974) The Charlatan
  • (1976) O Babylon!
  • (1977) Remembrance
  • (1978) Pantomime
  • (1980) The Joker of Seville and O Babylon!: Two Plays
  • (1982) The Isle Is Full of Noises
  • (1986) Three Plays (The Last Carnival, Beef, No Chicken, and A Branch of the Blue Nile)
  • (1991) Steel
  • (1993) Odyssey: A Stage Version
  • (1997) The Capeman (Textar í samvinnu við Paul Simon)

Tilvísanir

  1. Robert Graves: Derek Walcott handles English with a closer understanding of its inner magic than most (if not any) of his contemporaries.
  2. The Great Modern Poets; Google bækur

Tenglar

  Þetta æviágrip sem tengist bókmenntum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.