London Heathrow-flugvöllur
Appearance
London Heathrow-flugvöllur eða Heathrow (IATA: LHR, ICAO: EGLL) er flugvöllur í Hillingdon-hverfinu og er stærsti og fjölsóttasti flugvöllur Bretlands. Hann er þriðji fjölsóttasti flugvöllur heims fyrir alþjóðlega umferð. BAA á og stjórnar flugvellinum, og á og stjórnar sex öðrum flugvöllum á Bretlandi. Heathrow er höfuðstöðvar British Airways, BMI og Virgin Atlantic.
Hann er 22 km vestur af miðbæ Lundúna í sögufrægu sýslunni Middlesex og er með tveimur flugbrautum og fimm flugstöðvarbyggingum. Þar eð flugvöllurinn er vestur af Lundúnum verða flugvélar að fljúga yfir borgina til að lenda á honum.
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist London Heathrow-flugvöllur.