Illinois
Útlit
Flagg | Skjöldur |
---|---|
Illinois er fylki í Bandaríkjunum. Fylkið liggur að Wisconsin í norðri, Indiana í austri, Kentucky í suðri og Missouri og Iowa í vestri. Fylkið liggur einnig að Michiganvatni í norðaustri. Höfuðborg Illinois er Springfield, en Chicago er stærsta borg fylkisins.
Um 12,5 milljón manns búa í Illinois.