(Translated by https://www.hiragana.jp/)
Berta af Hollandi - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Berta af Hollandi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Berta drottning. Filippus sagði hana of feita en listamaðurinn sem gerði þessa mynd hefur verið annarrar skoðunar.

Berta af Hollandi (um 10551093) var drottning Frakklands frá 1072 til 1092 en þá sagði Filippus konungur skilið við hana og tók sér aðra konu.

Berta var dóttir Floris 1., greifa af Hollandi, og konu hans, Geirþrúðar af Saxlandi. Floris dó 1061 og Geirþrúður giftist Róbert 1. greifa af Flæmingjalandi, sem kallaður var Róbert Fríslendingur. Hann gerði friðarsamning við Filippus 1. Frakkakonung árið 1072 og í þeim samningi fólst meðal annars að Filippus skyldi ganga að eiga Bertu.

Níu ár liðu þar til Berta fæddi ríkiserfingjann Loðvík og er sagt að einsetumaðurinn Arnoul hafi beðið fyrir frjósemi drottningar og og gefið drengnum nafn. Þau eignuðust síðan fleiri börn, þar á meðal dótturina Konstönsu, sem giftist Húgó 1. af Champagne og síðan Bohemund 1. af Antiokkíu, og soninn Karl, sem varð ábóti.

Árið 1092 sagði Filippus skilið við Bertu á þeirri forsendu að hún væri of feit. Hann kom Bertu fyrir í virkinu Montreuil-sur-Mer, þar sem hún var í stofufangelsi, tók saman við Bertrade de Montfort, greifynju af Anjou og giftist henni þótt bæði ættu maka á líf. Berta dó ári síðar.

Heimild