Úrbínó
Appearance
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3b/Urbino-palazzo_e_borgo.jpg/220px-Urbino-palazzo_e_borgo.jpg)
Úrbínó er víggirt borg í héraðinu Marke á Ítalíu, suðvestan við höfuðstað héraðsins, Pesaró. Borgin er á heimsminjaskrá UNESCO vegna ríkulegra minja frá endurreisnartímanum, einkum frá þeim tíma þegar Friðrik frá Montefeltro ríkti yfir borginni 1444 til 1482. Úrbínóháskóli var stofnaður 1506.
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Úrbínó.