Digimon
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. |
Titill á frummáli | デジモン (dejimon) |
---|---|
Enskur titill | Digimon |
Gerð | Sjónvarpsþættir |
Efnistök | Ævintýri |
Fjöldi þátta | 332 (25 mín.) |
Útgáfuár | 1999 til 2012 |
Lykilmenn | Akiyoshi Hongo |
Myndver | Toei Animation |
Digimon (jap. デジモン dejimon) er japönsk sería sem inniheldur anime þáttaraðir, tölvuleiki, leikföng, TCG spil, manga bækur og fleira. Ekkert þeirra hefur hingað til komið út á íslensku. Digimonar eru verur sem lifa í heimi sem hefur þróast í gagnaflutningakerfum jarðarinnar. Þegar þessi stafræni heimur er í hættu þurfa aðalpersónurnar að bjarga honum. Digimon er að stórum hluta byggt á goðsögnum og slíku. Meðal annars er tekið úr austurlenskum trúarbrögðum, kristinni trú og smávegis úr norrænu goðafræðinni.[1]
Digimonar
[breyta | breyta frumkóða]- Digimon þýðir Digital Monster og má þýða sem stafræn skepna eða gagnavera.
- Digimonar eru skepnur, sem lifa í stafræna heiminum.
- Hver digimoni skríður úr gagnaeggi og er þá venjulega á fyrsta þróunarstigi, að fáum digimonum undanskildum. (t.d.: Guilmon).
- Allir digimonar hafa mörg þróunarstig og geta þróast í mismunandi digimona. (t.d.: Einn V-mon þróast í XV-mon, meðan annar þróast í V-dramon. Bæði Greymon og Airdramon geta þróast í War Greymon).
- Allir digimonar tilheyra yfirleitt einni af fimm tegundum: gögn, mótefni(lyf), vírus, breytilegt eða óþekkt, þó undantekningar séu til.
- Allir digimonar hafa allavega eina sérstaka árás, flestir fleiri.[2]
Stafrænt gæludýr (Virtual Pet)
[breyta | breyta frumkóða]Upprunalega var Digimon stafrænt gæludýr. Það var gefið út af Bandai, og var fyrirrennari þess Tamagotchi af sama framleiðanda.
Virtual Pet er handtölvuleikur, sem leifir manni að að sjá um og ala upp stafrænt gæludýr. Það þarf að gefa því mat, hreinsa upp eftir þeim og fl. Jafnvel hægt að láta gæludýrið sitt berjast við gæludýr annara. Eftir því hvernig gæludýrið var alið upp gæti það tekið á sig mismunandi útlit og eiginleika þegar það ólst upp og ef því var vanræktað dó það.
Frá fyrstu útgáfunni 1997 komu út margar ólíkar útgáfur af leiknum. Sumar þeirra hafa verið gerðar fyrir sjónvarpsseríuna. Nefna má meðal annars Digital Monster, Pendulum og Pendulum X, Progress, Digivice, Accel, Mini, iC, Twin og fleiri.[3]
Digital Monster
- 26. júní 1997 birti Bandai handtölvuleik sem nefndist „Digital Monster“. Leikurinn gekk út á það að ala digimona og tengjast með öðrum leikmönnum til að berjast með digimonum þeirra. Leikfangið reyndist vera svo vinsælt að fjórar útgáfur bættust við í nóvember sama ár. Í desember kom út „önnur kynslóðin“ og 1998 „þriðja kynslóðin“.
Pendulum
- 1999 til 2000 kom Bandai með nýtt digimonagæludýr sem kallaðist „Digimon Pendulum“. Með þessum nýjum útgáfum kom nýtt þróunarstig og möguleikurinn að tveir digimonar þróast saman í einn sterkara Digimona. Útgáfurnar hétu: Nature Spirits, DeepSea Savers, Nightmare Soldiers, Wind Guardians, Metal Empire og Virus Busters.
Pendulum X
- „Digimon Pendulum X“ blandar saman klassísku stafrænu gæludýrinu við RPG eiginleika af „Digivice“. Til eru þrjár útgáfur. Version 1 til 3. Pendulum X birtist í Asíu einnig undir nafninu D-Cyber.
Mini
- „Digimon Mini“ er uppbyggt á upprunalegum Digital Monster leiknum og er stærðin á tölvunni og skjánum aðal munurinn. Útgáfurnar eru Version 1 til 3.
Digivice
- Þessar útgáfur eru byggðar á tækjunum sem sjást í anime seríunum. Þær eru eins og Pendulum raðirnar og innihalda Digimon Digivice, Digimon D3 Digivice, Digimon D-Arc, Digimon D-Tector og Digimon Savers IC V-Pet og fleiri.
Manga
[breyta | breyta frumkóða]V-Tamer
- Digimon Adventure V-Tamer 01 birtist fyrst í blaðinu V-Jump 21. nóvember 1998. Það fjallar um strák að nafni Taichi og félaga hans Zeromaru, sem er V-dramon. Þeir koma í stafræna heiminn, „the Digital World“ til að bjarga honum frá illum digimonum eins og Demon. Í bindi tvö var birt „C'mon Digimon“ sem er óháð V-Tamer.
Chronicle
- Digimon Chronicle eru fjórir litaðir kaflar sem fylgdu með Pendulum X leikjunum. Aðalpersónurnar eru Kouta og digimona félagi hans, DORUmon. Þeir reyna að stöðva Yggdrasil, tölvuna, þar sem stafræni heimurinn er á, frá því að eyða þeim heimi. Yggdrasil sendir konunglegu riddarana (Royal Knights) móti þeim.
Next
- Í Digimon Next er aðalpersónan Tsurugi með félaga hans Greymon. Hann er góður í fótbolta og Digimon Mini leiknum. Vinir hans sýna honum miklu betri leik þar sem hann kemst inn í stafræna heiminn til að leika þar. En allt í einu birtast digimonar í alvöru á jörðinni.
D-Cyber
- D-Cyber er mjög líkt og Digimon Chronicle og er í raun kínverska útgáfan af því. Mesti munurinn er sá að óvinurinn er digimoninn Metal Phantomon. Aðalpersónan heitir Hikaru og er DORUmon félagi hans.
Xros Wars
- Lauslega byggt á Xros Wars þáttunum kynna þessir kaflar sömu persónurnar og byrja á svipaðan hátt. En mjög fljótlega þróast sagan í allt aðra átt og jafnvel ein af aðalpersónunum, sem er strákur í seríunni (Yuu Amano), er stelpa hér (Kotone Amano).
Re:Digitize og Decode
- Þessi mangasería er byggð á Digimon World Re:Digitize tölvuleiknum fyrir PSP og Nintendo DS.
Kínverskar Útgáfur
- Kínverski höfundurinn Yuen Wong Yu teiknaði manga raðir sem eru byggðar á fyrstu fjórum anime seríunum. Söguðræðinum hefur verið stytt örlítið en fylgir hann þó seríunum að mestu leiti. Fyrstu þrjár raðirnar voru þýddar á ensku af Tokyopop og nota þau Amerísku útgáfurnar af seríunum fyrir þýðingarnar.
Vesturinn
- Nokkur lönd hafa gert eigin útgáfur byggðar á anime seríunum. Í Bandaríkjunum hefur Dark Horse Comics birt röð sem er byggð á amerísku útgáfu fyrstu seríunnar. Panipani birti í evrópu einnig nokkrar raðir sem muna dálítið milli landanna.
Doujinshi
- Margar myndasögur hafa verið gefnar út af aðdáendum seríunnar, bæði í bæklingsformi sem og í stafrænu formi. Stórhluti efnisins er á japönsku, en þó er líka hægt að finna eitthvað á ensku, þýsku, frönsku, hollensku, spænsku og fleiri málum.[4]
Anime myndir
[breyta | breyta frumkóða]Margar myndir um Digimon komu út í Japan, en birtust nokkrar þeirra ekki í vestræna heiminum. Einnig birtist í Bandaríkjunum mynd, sem er samansett af fyrstu þremur japönskum myndunum.[5]
Anime seríur
[breyta | breyta frumkóða]Sjö seríur (Digimon Adventure, Digimon Adventure 02, Digimon Tamers, Digimon Frontier, Digimon Savers, Digimon Xros Wars og Digimon Xros Wars: The Boy Hunters Who Leapt Through Time) komu út milli 1999 og 2012.
TCG
[breyta | breyta frumkóða]Fyrir hvern digimona, sem birtist í þáttunum, myndunum, leikjunum og myndasögunum, er til að minnsta kosti eitt spil. Langflestir eru þó með mörg spil. Margir digimonar birtast sem spil, sem hafa ekki birst annars staðar.
Til eru fleiri reglur en ein, þó eru þær dæmigerðar TCG reglur. Tilgangurinn er að láta hinn/hina leikmanninn/leikmennina fá ákveðinn fjölda af mínus stigum. Hver leikmaður byrjar með ákveðinn fjölda af spilum, sem hann dregur af stokknum sínum. Spilin, sem til eru, eru skepnuspil, sem notaðar eru til að ráðast á andstæðingana og framkvæmdarspil, sem geta til dæmis stykt árás digimonanna eða látið þá þróast. Á borðinu eru tvær raðir. Sú nærri hjá leikmanninum er til að láta digimonana þróast og hin til að láta digimonana berjast. Hver umferð hefur fleiri lotur, ein til að senda út digimona og ein til að ráðast á og svo framvegis. Ef allir andstæðingar hafa fengið ákveðið magn af mínus stigum er leiknum lokið.
Goðsagnir
[breyta | breyta frumkóða]Höfundar Digimon notast mikið við táknfræði og goðsagnir til að byggja upp sögurnar. Tákn eins og litir, frumefni eða dyggðir eru notuð í öllum seríunum og myndum.
Til dæmis eru skjaldamerkin í fyrstu seríunni upprunalega sjö, sem er heilög tala í Kristninni.
Goðsagnir margra trúarbragða eru notuð í Digimon. Til dæmis úr kaþólsku trúnni eru teknar dauðasyndirnar sjö og er hver tengd við illan digimona.
Heilagar skepnur úr kínversku stjörnufræðinni eru notaðar sem vættir stafræna heimsins. Þjónar þeirra digimona kallast Deva, sem eru byggðir á guðum hindúisma og jaínisma og eru þeir líka til í búddisma, þó að þar séu þeir ekki guðir. Þeir eru góðir fyrir nokkra, en illir fyrir aðra.
Í norrænum sögnum er Yggdrasil kjarni jarðar og lífsins tré. Í Digimon ber aðaltölvan það nafn því að hún var kjarni stafræna heimsins og gaf digimonunum líf. Einnig hefur Blitzmon árás, sem heitir Mjölnir Thunder.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]- Stafræni Heimurinn (Digimon)
- Digimon Seríur
- Digimon Myndir
- Digimon Adventure
- Digimon Frontier
- Revival of the Ancient Digimon
- Digital Monster X-evolution
- Anime
- Manga
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Digimon.Channel.or.jp Geymt 17 desember 2008 í Wayback Machine - Japanska Bandai Digimon vefsíðan
- DigimonCcg.com - Bandaríska Bandai Digimon vefsíðan
- BandaiCG Geymt 8 júlí 2007 í Wayback Machine - Ensk síða um TCG spilið
- Foxkids.fr Geymt 2 janúar 2007 í Wayback Machine - Franska Digimon Foxkids síðan
- Wikimon - Digimon Encyclopedia
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Digimon: Digital Monsters“. web.archive.org. 15. júní 2001. Afrit af upprunalegu geymt þann 15. júní 2001. Sótt 27. apríl 2023.
- ↑ „15 Best Digimon Adventure Characters of All Time - My Otaku World“. myotakuworld.com (bandarísk enska). 29. desember 2020. Sótt 27. apríl 2023.
- ↑ „Pixelmood | Digimon Tamagotchi“. www.tamatalk.com. Sótt 27. apríl 2023.
- ↑ „New Digimon Manga from Tenya Yabuno in Saikyo Jump Beginning Next Month“. With the Will // Digimon Forums (bandarísk enska). Sótt 27. apríl 2023.
- ↑ „15 Best Digimon Adventure Characters of All Time - My Otaku World“. myotakuworld.com (bandarísk enska). 29. desember 2020. Sótt 27. apríl 2023.