Fallhlíf
Útlit
Fallhlíf er tæki sem hægir á falli hlutar í andrúmsloftinu með því að búa til viðnám. Fallhlífin er yfirleitt gerð úr léttu efni eins og silki eða næloni og er fest við þann hlut sem hún á að verja falli með böndum eða vírum. Fallhlífin er brotin saman á sérstakan hátt inni í poka og opnast í fallinu.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist fallhlífum.