(Translated by https://www.hiragana.jp/)
Forsíða/Prufa - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Forsíða/Prufa

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Velkomin á Wikipediu
Hér geta allir lagt sitt af mörkum til þess að byggja upp ítarlegt alfræðirit á íslensku.
Hin íslenska Wikipedia fór í gang 5. desember 2003 og inniheldur núna 59.300 greinar.
Kynning fyrir byrjendur align:bottom Samvinna mánaðarins Handbók Wikipediu
Gæðagreinar Úrvalsgreinar
Grein nóvembermánaðar

Eldgosin við Sundhnúksgíga er eldgosahrina sem hófst í desember 2023 við Sundhnúksgíga norðan Grindavíkur og austan Svartsengis. Goshrinan hófst eftir að kvikusöfnun hófst undir Svartsengi í lok október 2023 og stór kvikugangur myndaðist í nóvember. Nú hafa orðið sex sprungugos á kvikuganginum þar sem hraunrennsli er mest fyrstu klukkustundirnar þegar gýs á langri sprungu en gosin hafa svo dregist saman á fáein gosop sem hafa sum verið virk í margar vikur. Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi og því má reikna með að eldgosin eigi eftir að verða fleiri.

Eldgosahrinan og jarðhræringar í aðdraganda hennar eru á meðal stærstu náttúruhamfara sem gengið hafa yfir á Íslandi. Grindavíkurbær var rýmdur þegar kvikugangurinn myndaðist 10. nóvember 2023 og þar hefur orðið verulegt eignatjón á fasteignum og innviðum, aðallega vegna sprunguhreyfinga. Hraun frá eldgosunum hefur runnið yfir vegi og lagnir og ráðist hefur verið í gerð mikilla varnargarða til að verja bæði Grindavíkurbæ og Svartsengisvirkjun.

Eldri greinarTilnefna grein mánaðarins.
Atburðir 10. nóvember