(Translated by https://www.hiragana.jp/)
Fritz Haber - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Fritz Haber

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Fritz Haber (f. 9. desember 1868 í Breslau (Prússlandi), d. 29. janúar 1934 í Basel í Sviss) var þýskur efnafræðingur. Honum voru veitt nóbelsverðlaun í efnafræði 1918 fyrir að hafa þróað, ásamt Carl Bosch, aðferð til að smíða ammoníak úr frumefnum þess. Sú aðferð er nefnd Haberferlið.

Haber tók heimstyrjöldinni fyrri fagnandi, þegar hún braust út og hvatti til og þróaði gashernað, m.a. með klórgasi.

Haber nam efnafræði í Berlín og Heidelberg undir leiðsögn Hofmanns og Bunsens. 1891 varði hann doktorsritgerð sína við háskólann í Berlín. Hún fjallaði um afleiður Píperónals (Über einige Derivate des Piperonals).