(Translated by https://www.hiragana.jp/)
Gareth Evans - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Gareth Evans

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Vestræn heimspeki
Heimspeki 20. aldar
Nafn: Gareth Evans
Fæddur: 12. maí 1946
Látinn: 10. ágúst 1980 (34 ára)
Skóli/hefð: Rökgreiningarheimspeki
Helstu ritverk: „Can There Be Vague Objects?“, The Varieties of Reference
Helstu viðfangsefni: frumspeki, hugspeki, málspeki, rökfræði
Markverðar hugmyndir: óskýrleiki

Gareth Evans (12. maí 194610. ágúst 1980) var breskur heimspekingur og prófessor í heimspekivið Oxford University á 8. áratug 20. aldar.

Evans nam heimspeki, stjórnmálafræði og hagfræði við University College í Oxford (19641967). Kennari hans í heimspeki var Peter Strawson. Hann varð fræðimaður við Christ Church, Oxford (1967–1968) og Kennedy Scholar við Harvard University og University of California, Berkeley (1968–1969). Hann lést af völdum lungnakrabbameins árið 1980, þá 34 ára gamall. Ritgerðasafn hans, The Varieties of Reference, kom út að honum látnum.

Á stuttum ferli sínum lagði Evans að mörkum í rökfræði, frumspeki, málspeki og hugspeki. Auk Strawsons voru Michael Dummett og John McDowell mikilvægir áhrifavaldar í hugsun hans.

Líkt og margir breskir heimspekingar vann Evans að því að þróa merkingarfræði fyrir náttúruleg tungumál, undir áhrifum frá bandaríska heimspekingnum Donald Davidson.

Tugir ritgerða voru skrifaðar sem andsvar við einnar blaðsíðu langri grein hans „Can There Be Vague Objects?“ sem birtist í tímaritinu Analysis. Hún er nú talin vera undirstöðuverk í frumspeki.