Jóhannesarborg
Appearance
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/ac/Highway_intersection_Johannesburg.jpg/220px-Highway_intersection_Johannesburg.jpg)
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/80/Busy_lives_in_a_busy_town.jpg/220px-Busy_lives_in_a_busy_town.jpg)
Jóhannesarborg (afríkanska og enska: Johannesburg) er fjölmennasta borg Suður-Afríku og sú þriðja fjölmennasta í Afríku á eftir Kaíró og Lagos. Borgin er einnig höfuðborg Gauteng-héraðs, ríkasta héraðs Suður-Afríku, en er ekki höfuðborg landsins. Hún er stærsta borg veraldar sem ekki liggur að sjó, stöðuvatni eða á.
Í Jóhannesarborg fara fram mikil viðskipti með gull og demanta en borgin er staðsett í Witwatersrand-fjallgarðinum þar sem miklar gull og demantanámur er að finna. Flugvöllur borgarinnar er sá stærsti í Afríku.
Íbúar voru rúmar 3 milljónir 2001, en á Stór-Jóhannesarborgarsvæðinu sem einnig tekur til nálægra útborga búa samtals um 8 milljónir.