Konfúsíus
Konfúsíus (kínv. Kongzi
Konfúsíus var hefðarsinni. Hann leit svo á að samfélaginu væri best farið að treysta í sessi þá siði og þær venjur sem höfðu ríkt á blómaskeiði Zhou-veldisins um þremur öldum áður. Í seinni tíð hefur þetta oft verið skilið sem svo að Konfúsíus hafi verið afturhaldssinni sem vildi einfaldlega snúa aftur til fortíðar. Deila má um hvort að þetta sé sanngjarnt mat á heimspeki hans. Í Samræðum Konfúsíusar (kínv. Lunyu 论语), sem er samansafn tilvitnana í Konfúsíus og frásagna af honum sem skráð hafa verið af lærisveinum hans, gefur hann oftsinnis til kynna að siði og venjur verði að laga að aðstæðum. Þessi þáttur er settur fram með enn skýrari hætti af þekktasta eftirmanni Konfúsíusar, Mensíusi. Stöðugt streymi tímans og stöðugar breytingar eru grundvallarforsendur í hugsun konfúsista. Áhersla er því á þróun og framvindu. Hins vegar er leitast við að finna stöðugleika með því að byggja á traustum grundvelli. Þannig segir Konfúsíus að sá geti talist vitur sem færi fram hið nýja með því að rýna í hið forna.
Siðir (kínv. li
Markmið Konfúsíusar var að sannfæra valdhafa um að hrinda heimspeki sinni í framkvæmd. Hann ferðaðist því um í fjölda ára og leitaðist við að fá áheyrn hjá valdhöfum hinna ýmsu ríkja veldisins. Gengu tilraunir þessar brösuglega og lenti Konfúsíus oftar en ekki í lífsháska. Þegar hann var um fimmtugt var honum hins vegar veitt ráðherrastaða í Lu-ríki og gegndi hann þeirri stöðu í nokkur ár með góðum árangri. Spilling innan ríkisins varð hins vegar til þess að hann þurfti að láta af störfum og flýja land. Hann hélt áfram ferðalögum sínum en varð lítið ágengt og sneri aftur í Lu-ríki árið 484, þá 67 ára að aldri. Þar eyddi hann síðustu ævidögum sínum við kennslu og hugsanlega ritstörf þar til hann lést fjórum árum síðar.
Áhrif
[breyta | breyta frumkóða]Varla verða áhrif Konfúsisma eða Konfúsíusarhyggju ofmetin. Á 1. öld e.Kr. var konfúsísk heimspeki (konfúsíusismi) gerð að opinberri hugmyndafræði kínverska keisaraveldisins og gegndi hún því hlutverki allt þar til síðasta keisaraveldið féll árið 1911. Kínversk menning væri í dag allt önnur án þeirra áhrifa sem konfúsísk hugsun hefur haft á hana í rás sögunnar. Hin gífurlegu áhrif sem Kína hafði á nágrannaríki sín allt fram á 19. öld hafa einnig gert að verkum að þjóðir á borð við Japan, Kóreu, Víetnam og Singapore eru að mjög miklu leyti mótaðar af konfúsískri hugsun. Hugsun þessi er margþætt og hefur þróast til að verða nokkuð önnur en sú sem Konfúsíus setti fram fyrir meira en 2500 árum, en samkvæmni hennar er þó glettilega mikil og Samræður Konfúsíusar, sem til eru á íslensku í þýðingu Ragnars Baldurssonar, eru konfúsískum hugsuðum enn ein mikilvægasta uppspretta nýstárlegra hugmynda.