Meðlag
Meðlag (eða barnsmeðlag og í eldra lagamáli forlagseyrir) er framfærslustyrkur með barni og kemur til vegna þess að foreldrar eru ekki í sambúð, og er greiddur af því foreldri sem ekki er með barnið (eða börnin) á sinni framfærslu. Meðlag er oftast greitt af föður til móður. Ríkissjóður ábyrgist meðlagsgreiðslur, en innheimtir þær af meðlagsgreiðanda.
Orðalag
[breyta | breyta frumkóða]Hér áður fyrr var talað um skot, en það var til forna framlag foreldris til barns eftir skilnað foreldranna. Enn er talað um að gefa með barni. [1] Meðlag er stundum í gamni kallað folatollur eða leikutollur.
Limra um meðlagsgreiðslur
[breyta | breyta frumkóða]Magnús Óskarsson samdi einu sinni limru sem er nokkuð kerskin, eins og limrur oftast eru, og leikur sér þar með kjörorð lögreglunnar, sem í íslenskum heimildum er þekkt úr Njáls sögu með viðbótinni. Limran er þannig:
- Menn, sem að meyjum hyggja
- mest þegar fer að skyggja
- og hafa þann metnað
- að hindra ekki getnað,
- meðlögum land vort byggja.[2]