Pönnukaka
Útlit
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b5/Pieter_Aertsen_%E2%80%94_The_Pancake_Bakery.jpg/220px-Pieter_Aertsen_%E2%80%94_The_Pancake_Bakery.jpg)
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/7f/P%C3%B6nnuk%C3%B6kur.jpg/220px-P%C3%B6nnuk%C3%B6kur.jpg)
Pönnukaka er örþunn kaka úr hveiti, eggjum og mjólk. Úr þessum afurðum er búin til soppa. Pönnukökur eru oftast bakaðar á pönnu, annaðhvort á skaftpönnu eða frístandandi rafmagnspönnu. Íslensku pönnukökur eru oftast borðaðar með strásykri eða sultu og þeyttum rjóma. Pönnukökur eru til í flestum nágrannalöndum okkar en þar eru þær oftast þykkari en þær íslensku og minna jafnvel á lummur.
Uppskrift
[breyta | breyta frumkóða]Til eru margar uppskriftir að pönnukökum. Eftirfarandi uppskrift er fengin úr bók Helgu Sigurðardóttur.
- 250 gr. hveiti
- 40 gr. smjörlíki
- 1 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk. sódaduft
- 1/2 tsk. salt
- 6-7 dl mjólk
- 2 egg
- vanilludropar eftir smekk
Þessu er öllu hrært vel saman í þunna hræru. Gott er að nota þeytara til þess. Bakað á pönnukökupönnu við góðan hita. Pönnukökurnar má vefja upp með sykri eða sýrópi. Einnig er afar vinsælt að bera þær fram með þeyttum rjóma og berjasultu.
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e1/P%C3%B6nnuk%C3%B6kubakstur.jpg/220px-P%C3%B6nnuk%C3%B6kubakstur.jpg)
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Wiktionary-logo-is.png/35px-Wiktionary-logo-is.png)
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Pönnukaka.
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/84/Wikibooks-logo-is.png/40px-Wikibooks-logo-is.png)
Wikibækur eru með efni sem tengist Íslenskum pönnukökum.
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Pönnukaka.
- Hallgerður Gísladóttir (1999). Íslensk matarhefð. Mál og menning, Reykjavík.
- Helga Sigurðardóttir (1986). Matur og drykkur. Mál og menning, Reykjavík.