Urumqi
Urumqi borg (eða Urumchi) (kínverska: 乌鲁
Urumqi var mikilvægur áningarstaður við Silkveginn á tíma Tangveldisins (618-907) í Kína og þróaði orðspor sitt sem leiðandi menningar- og verslunarmiðstöð Tjingveldisins á 19. öld. Nafnið Urumqi er dregið úr á mongólsku og þýðir „fallega engi“.
Urumqi þróast hratt síðan á tíunda áratug síðustu aldar og þjónar nú sem svæðisbundin miðstöð samgangna, menningar, stjórnmála og viðskipta í Xinjiang héraði. Um alþjóðaflugvöll borgarinnar fóru 23 milljónir farþega árið 2018.
Urumqi er næststærsta borgin í norðvesturhluta Kína, sem og sú stærsta í Mið-Asíu miðað við íbúafjölda. Menningarlega er borgin talin úígúrsk borg. Borgarbúar eru þó langflestir Han-kínverjar (75 prósent árið 2010), en Úígúrar (um 12 prósent) og kasakstanar (um 2 prósent) eru langflestir múslimar. Úígúrska þjóðin talar tungu af tyrkneskum stofni, sem er alls óskyld kínversku.
Lýðfræði[breyta | breyta frumkóða]
Árið 2020 þegar síðasta manntal var gert í Kína, var íbúafjöldi borgarkjarna Urumqi 3.750.000 en íbúafjöldi undir lögsögu borgarinnar var 4.054.369.
Tenglar[breyta | breyta frumkóða]
- Kínversk vefsíða borgarstjórnar Urumqi Geymt 13 maí 2020 í Wayback Machine. Inniheldur ýmsar upplýsingar um t.d. fréttir, skipulag.
- Ensk vefsíða Encyclopaedia Britannica um Urumqi borg.