Arkímedes
Útlit
Arkímedes (287 f.Kr. — 212 f.Kr.) var grískur stærðfræðingur, stjarnfræðingur, heimspekingur, eðlisfræðingur og vélfræðingur. Hann er oft talinn með mestu stærðfræðingum allra tíma.
Tilvitnanir
[breyta]- „Ég hef fundið það!“
- Forngríska: εύρηκα. (hevreka!)
- Vitruvius Pollio greinir frá í ritinu De Architectura IX.215 að Arkímedes hafi hrópað þetta er hann hljóp nakinn um götur Sýrarkúsu eftir að hafa uppgötvað í baði að hann gæti mælt hlutfall gulls í kórónu konungs með því að athuga hve miklu vatni hún ryddi frá sér miðað við þyngd.
- „Gefðu mér stað til að standa á og ég skal hreyfa jörðina“
- Forngríska: δος
μ ο ι π ο υ σ τ ω κ α ι κ ι ν ω τ η ν γ η ν
- Pappos frá Alexandríu, Synagoge VIII, u.þ.b. 340.
- „Ekki rugla hringjunum mínum“
- Forngríska:
Μ η μ ο υ τους κύκλους τάραττε!
- Dánarorð Arkímedesar rétt áður en hann var veginn af rómverskum hermanni. Oft höfð eftir Arkímedesi á latínu: Noli turbare circulos meos!