Morgunblaðið - 16.05.2009, Side 33
Þegar Jóhanna „þurfti“ túlk
HÚN var merkileg fyrirsögnin á
visir.is um blaðamannafund sem Jó-
hanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra hélt með erlendu fjölmiðlafólki
í Þjóðmenningarhúsinu síðastliðinn
kosningadag. Á fundinum svaraði Jó-
hanna blaðamönnum á íslensku en
túlkur þýddi svör hennar á ensku.
Þessu eigum við ekki að venjast og
visir.is fjallaði um fundinn undir fyr-
irsögninni „Jóhanna þurfti túlk“.
Fyrir fundinn hafði komið upp um-
ræða í fjölmiðlum þar sem ótvírætt
var gefið í skyn að ófullnægjandi
tungumálakunnátta forsætisráðherra kæmi í veg
fyrir eðlileg samskipti hennar við fulltrúa erlendra
fjölmiðla. En tungumálakunnátta Jóhönnu er al-
gert aukaatriði í þessu máli, eins og komið verður
að síðar.
Áfallið sem þjóðin varð fyrir í kjölfar banka-
hrunsins er eitthvert það alvarlegasta sem yfir okk-
ur hefur dunið og viðbrögð stjórnvalda á margan
hátt sorgleg. Grundvallarregla áfallastjórnunar er
að bregðast sem fyrst við með fumlausum við-
brögðum. Þegar áfall dynur yfir höfum við í raun og
veru sárafáa valkosti og þurfum að taka ákvarðanir
mjög skjótt. Aðgerðaleysi leiðir af sér margvíslegar
óæskilegar aukaverkanir. Eitt af því
fyrsta sem við þurfum að gera er að
upplýsa ólíka hagsmunahópa með
ólíkar þarfir á sem skemmstum tíma.
Einfaldasta leiðin er að gera það í
gegnum fjölmiðla.
Markmiðið á alltaf að vera að draga
eins og kostur er úr þeim ímynd-
arskaða sem áfallið getur valdið. Lið-
ur í því er meðal annars að tryggja að
fjölmiðlar, hagsmunahópar og al-
menningur fái ávallt réttar upplýs-
ingar. Með því móti er komið í veg fyr-
ir margvíslegar getgátur og
vangaveltur sem sjaldnast eru réttar
og um leið er komið í veg fyrir ranga
og skaðlega umfjöllun í fjölmiðlum og kjaftasögur
eru kæfðar í fæðingu.
Nútímafjölmiðlun er afskaplega hröð og hún er
ágeng. Fjölmiðlar þurfa stöðugt fréttir og þeir hafa
enga biðlund í stórum málum. Fjölmiðlun samtím-
ans byggist ekki á afmörkuðum fréttatímum eins
og áður var. Með tilkomu öflugra netmiðla má með
sanni segja að lífið sé einn allsherjar fréttatími. Það
getur því verið erfitt að leiðrétta ranghermi eða orð
sem sögð eru í hálfkæringi, því ekki þurfa að líða
nema fáeinar mínútur frá því ummæli falla þar til
þau birtast í fjölmiðlum innanlands sem og erlend-
is, eins og dæmin sanna. Það er erfitt að leiðrétta
frétt sem lifir sjálfstæðu lífi í flóknum fjölmiðla-
heimi.
Það er því deginum ljósara að upplýsingamiðl-
unin þarf að vera hnitmiðuð og hreinskiptin til þess
að snúa vörn í sókn og hefja ímyndarlega uppbygg-
ingu eftir að áfallið dynur yfir. Þær upplýsingar
sem við látum frá okkur fara þurfa að vera sannar
og framsetningin skýr þannig að ekki sé unnt að
misskilja orð okkar eða draga af þeim rangar álykt-
anir.
Það má því hrósa Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir
að nýta sér túlk til þess að upplýsingar hennar og
áherslur komist óbrenglaðar til skila til þeirra sem
þurfa á upplýsingunum að halda hvort sem þeir búa
hérlendis eða erlendis. Kannski hefðu aðrir ráð-
herrar átt að kalla til túlka á fyrri stigum krepp-
unnar. Vonandi læra menn af þessu góða fordæmi
forsætisráðherra.
Eftir Þorstein G. Gunnarsson » Grundvallarregla áfalla-
stjórnunar er að bregðast
sem fyrst við með fumlausum
viðbrögðum. Aðgerðaleysi leiðir
af sér óæskilegar aukaverkanir.
Þorsteinn G.
Gunnarsson
Höfundur er ráðgjafi hjá KOM
almannatengslum.
33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2009
Hvernig stendur siðgæðið? Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir bauð þingmönnum upp á að snúa siðgæðiskompási. Þessir herramenn þáðu það ekki.
Kristinn
Salvör Kristjana Gissurardóttir | 15.
maí
Byltingartólið Twitter …
Rodrigo Rosenberg var
myrtur í Gvatemala City
fyrir fimm dögum.
Ástandið er þannig þar í
landi að margir eru myrt-
ir, Rosenberg var lög-
fræðingur og vann að
máli fyrir Khalil Musa og dóttur hans
Majorie Musa. Þau voru bæði myrt í
mars síðastliðnum. Ég hefði ekki vitað
af þessum morðum nema út af því að í
gær las ég á Twitter-straumi að Twitter-
notandi í Gvatemala hefði verið hand-
tekinn fyrir að pósta twít þar sem hann
ráðlagði fólki að taka fé út úr tilteknum
banka í Gvatemala og varaði við spill-
ingu í landinu. … Rosenberg tók upp
ávarp áður en hann var myrtur og í
ávarpinu segir hann: „Ef þú ert að
hlusta á þessa upptöku þá hef ég verið
myrtur.“ Hann ásakar í því myndbandi
forseta Gvatemala, forsetafrúna og
menn þeim handgengna um að hafa
staðið fyrir morðunum …
Meira: salvor.blog.is
Kristján H. Theódórsson | 15. maí
Hugarfarsbreyting!
Nú eru menn unn-
vörpum að átta sig á fá-
ránleika ofurlaunastefn-
unnar.
Auðvitað getur verið
réttlætanlegt að hafa
nokkurn launamun, ein-
hver hvati þarf að vera til að fólk leiti
sér menntunar og fái metnað til að
sækjast eftir stjórnunarstörfum. Hitt
hef ég aldrei skilið að í heimi þar sem
margur hefur vart til hnífs og skeiðar
sé talið réttlætanlegt að greiða ein-
staklingum í tugavís margföld nauð-
þurftarlaun.
Ég stakk upp á því fyrir rúmum 20
árum á fundi með Þorsteini Pálssyni,
þv. forsætisráðherra, að fyrirtæki yrðu
látin gjalda þess skattalega ef þau
greiddu sínum silkihúfum úr hófi fram
í launum og öðrum viðurgerningi. …
Meira: ktedd.blog.is
Sigurður Þór Guðjónsson | 15. maí
Ósiður lagður niður
Vonandi verður það fram-
tak þriggja þingmanna
Borgarahreyfingarinnar
að vera úti á Austurvelli
meðan guðþjónustan fyr-
ir þingsetningu fer fram
fyrsta skrefið í þá átt að
sá ósiður verði lagður niður að upphaf
veraldlegs löggjafarþings hefjist á trúar-
legu helgihaldi.
Ekki líst mér samt á hugvekju Sið-
menntar sem fram fer á sama tíma. Hún
er bara mótvægi við helgihaldið.
Geta menn ekki bara byrjað að þinga
formálalaust glaðir í bragði. Hvað eiga
svona vitleysislegar serimóníur að þýða?
Meira: nimbus.blog.is
MÉR finnst ég vera
búinn að vera að moka í
botnlausa tunnu ráða-
manna þessa lands um
langa hríð. Botninn er
sennilega norður í Borg-
arfirði, sé tekið mið af
landfræðilegri stöðu
minni m.v. bræðurna frá
Bakka forðum daga.
Kannski ég ætti að bjóð-
ast til að bera inn sól í
skjólu til að hjálpa ráðamönnum að sjá
ljósið?
Um langa hríð, sennilega áratugi,
hefur Landssamband lögreglumanna
gagnrýnt ónógar fjárveitingar til lög-
gæslu þessa lands. Við höfum svo sem
ekki verið einir um það því núverandi
forsætisráðherra, Jóhanna Sigurð-
ardóttir, hefur margoft gagnrýnt
sömu hluti. Núverandi sjávarútvegs-
ráðherra, Jón Bjarnason, gerði slíkt
hið sama í grein sem hann ritaði,
ásamt Atla Gíslasyni
þingmanni VG, í
Morgunblaðið í mars
2008.
Um langa hríð,
sennilega áratugi, hef-
ur Landssamband lög-
reglumanna bent á þá
staðreynd að áherslur
ráðamanna, í lög-
gæslumálum þessarar
þjóðar, stæðu á brauð-
fótum. Þannig hefur í
raun engin markviss
þarfagreining átt sér
stað á því hver eiginleg löggæsluþörf
þessa lands er. Alþingi Íslendinga hef-
ur flotið sofandi að feigðarósi og
slumpað út einhverjum fjármunum í
hina og þessa málaflokka, eftir
ákvörðunum ráðherra og embættis-
manna í ráðuneytum, án þess að gera
sér nokkra grein fyrir því hvað verið
væri að samþykkja og hvort, ef ein-
hver, þarfagreining hefði átt sér stað
sem styddi þær óskir sem lagðar voru
fram. Lög hafa jafnvel verið sam-
þykkt, frá hinu háa Alþingi, án þess að
fyrir lægju sannfærandi úttektir á því,
hvort samþykkt laganna hefði í för
með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð.
Nú blasa við nöturlegar staðreyndir
málsins. Í lögreglulögum segir að
embætti ríkislögreglustjórans skuli
sjá lögreglunemum fyrir starfsþjálfun
í lögreglu í allt að átta mánuði. Hér
hafa engar fjárheimildir verið sam-
þykktar til að standa straum af áætl-
uðum kostnaði við þessa starfsþjálfun.
Í löggæsluáætlun til ársins 2011 er
gert ráð fyrir ákveðinni nýliðun í lög-
reglu og áætlanir lögregluskóla rík-
isins gerðu ráð fyrir ákveðnum fjölda
nýnema í samræmi við framsettar
áætlanir. Enn og aftur samþykkir Al-
þingi Íslendinga engar fjárveitingar
til verksins umfram þær sem skól-
anum voru ætlaðar. Ofan í þetta hafa
engar fjárveitingar verið samþykktar
til að standa straum af framhalds- og
viðhaldsmenntun lögreglumanna í
landinu.
Enn nöturlegri staðreyndir blasa
nú við en þær eru að um tuttugu (20)
nýlega útskrifaðir lögreglumenn
munu, frá og með 15. maí fara á at-
vinnuleysisbætur þar sem ekki eru til
peningar til að halda þeim við vinnu í
lögreglu. Þetta gerist þrátt fyrir þá
staðreynd að þessi fjöldi lögreglu-
manna var útskrifaður frá lögreglu-
skóla ríkisins í samræmi við áætlanir
sem gerðar höfðu verið og lög sem
sett höfðu verið. Þetta gerist þrátt
fyrir þá staðreynd, sem við blasir, að
um 100% aukning hefur orðið á t.d.
auðgunarbrotum á tímbilinu október
til mars 2007-2008 annars vegar og
2008-2009 hins vegar. Þetta gerist
þrátt fyrir þá staðreynd að eitt af yf-
irlýstum markmiðum nýrrar rík-
isstjórnar Íslands sé að verja þau
störf sem fyrir eru og fjölga störfum
svo skiptir þúsundum. Það er fallega
af stað farið, svo ekki sé meira sagt.
Þessar nöturlegu staðreyndir koma
ofan í þá staðreynd að allnokkur
fækkun hefur orðið í röðum lögreglu-
manna víða um land, vegna fjárskorts
hinna ýmsu embætta. Á höfuðborg-
arsvæðinu einu hefur fækkunin orðið
sem nemur um fimmtíu (50) stöðugild-
um lögreglumanna. Staðan nú er orð-
in þannig að á öllu höfuðborgarsvæð-
inu eru nú að störfum færri
lögreglumenn en sinntu Reykjavík,
ásamt Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ
fyrir sameiningu embættanna þriggja
í ársbyrjun 2007.
Það er mikið meira en nóg að gera
fyrir þessa tuttugu lögreglumenn,
sem gert er að láta af störfum 15. maí.
Þeirra er virkilega þörf í lögreglu.
Reyndar er það svo að þörf er á mun
meiri viðbótarmannskap í lögreglu en
þessum tuttugu og færi vel á því að
fylgt yrði áætlunum stjórnvalda í
þessum efnum. Það eru jú, eftir allt
saman, áætlanir stjórnvalda.
Hér þarf að lyfta grettistaki til að
snúa við þeirri óheillaþróun sem orðið
hefur í löggæslumálum þessarar þjóð-
ar. Landssamband lögreglumanna
kallar eftir viðbrögðum stjórnvalda í
þessum efnum.
Eftir Snorra
Magnússon »Hér þarf að lyfta
grettistaki til að
snúa við þeirri óheilla-
þróun sem orðið hefur í
löggæslumálum þess-
arar þjóðar.
Snorri Magnússon
Höfundur er formaður
Landssambands lögreglumanna.
Gísli, Eiríkur, Helgi
BLOG.IS