(Translated by https://www.hiragana.jp/)
Smolensk - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Smolensk

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 12:50 eftir Addbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 12:50 eftir Addbot (spjall | framlög) (Bot: Flyt 1 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q2337)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Smolensk á ljósmynd eftir Prókúdín-Gorskíj árið 1912.

Smolensk (rússneska: Смоленск;, hvítrússneska: Смаленск) er borg í vesturhluta Rússlands við ána Dnépr. Borgin er höfuðstaður sýslunnar Smolensk Oblast. Íbúafjöldi árið 2003 var 351.100 manns.

Nafn borgarinnar er dregið af nafni árinnar Smolnja en uppruni þess nafns er á huldu. Hugsanlega er það dregið af smola sem merkir bæði tjara og trjákvoða. Grenitré vaxa umhverfis borgina og hún var eitt sinn miðstöð fyrir vinnslu og verslun með trjákvoðu. Annar möguleiki er gamla slavneska orðið smol sem merkir „svört jörð“.