(Translated by https://www.hiragana.jp/)
Kastilía - Wikipedia, frjálsa alfræðiritið Fara í innihald

Kastilía

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 20. júlí 2017 kl. 12:41 eftir Akigka (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2017 kl. 12:41 eftir Akigka (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|right|Kastilía miðað við tvær mögulegar afmarkanir. '''Kastilía''' er sögulegt hérað á Mið- og Norður-Spáni sem er...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Kastilía miðað við tvær mögulegar afmarkanir.

Kastilía er sögulegt hérað á Mið- og Norður-Spáni sem er skilgreint með ýmsum hætti. Konungsríkið Kastilía var á þessu svæði á miðöldum en það sameinaðist síðar nágrannaríkjum í Aragón og Navarra og varð Konungsríkið Spánn. Sögulegur höfuðstaður Kastilíu er Burgos. Kastilía er venjulega talin ná yfir suður- og miðhluta Kastilíu og León og alla Kastilíu-La Mancha nema syðsta hlutann.

Áður fyrr skiptist Kastilía í Gömlu Kastilíu, sem frá 1833 eru héruðin Kantabría og La Rioja, auk austurhluta Kastilíu og León, og Nýju Kastilíu, sem voru Kastilía-La Mancha og héraðið Madríd.

Nafnið er talið þýða „land kastalanna“ og vísa til kastala sem kristnir konungar reistu á löndum sem þeir unnu frá márum við endurheimt Spánar.

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.