Sun Microsystems
![](https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/91/Wfm_sun_agnews.jpg/220px-Wfm_sun_agnews.jpg)
Sun Microsystems var stórt alþjóðlegt fyrirtæki sem framleiddi og seldi tölvur, tölvuíhluti, hugbúnað og þjónustu á sviði upplýsingatækni. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Santa Clara í Silicon Valley í Kaliforníu. Sun var keypt af Oracle fyrirtækinu og lagt niður 2010. Oracle tók því við Java hugbúnaðinum/forritunarmálinu og t.d. MySQL (sem Sun hafði keypt áður) og viðheldur báðu (MySQL hefur þó breyttar útgáfur, t.d. MariaDB, frá öðrum). Auk annars hugbúnaðar en ýmiss hugbúnaður sem Sun framleiddi hefur Oracle lagt niður ásamt vélbúnaðarframleiðsu (t.d. SPARC örgjörva).
Fyrirtækið var stofnað árið 1982 af nemendum frá Stanford-háskóla í kringum framleiðslu og sölu á Sun-1-einmenningstölvum sem notuðust við Motorola 68000-örgjörvann og voru hugsaðar fyrir
Meðal þekktustu vörulína fyrirtækisins eru SPARC-örgjörvinn, stýrikerfið Solaris, forritunarumhverfið Java, skrifstofuvöndullinn OpenOffice.org (keyptur 1999) og gagnaþjónninn MySQL (keyptur 2008).