„10. maí“: Munur á milli breytinga
Útlit
Efni eytt Efni bætt við
mEkkert breytingarágrip |
m robot Bæti við: kl:Maaji 10 |
||
Lína 109: | Lína 109: | ||
[[ka:10 მაისი]] |
[[ka:10 მაისი]] |
||
[[kk:Мамырдың 10]] |
[[kk:Мамырдың 10]] |
||
[[kl:Maaji 10]] |
|||
[[kn:ಮೇ ೧೦]] |
[[kn:ಮೇ ೧೦]] |
||
[[ko:5월 10일]] |
[[ko:5월 10일]] |
Útgáfa síðunnar 10. maí 2010 kl. 14:02
10. maí er 130. dagur ársins (131. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 235 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
- 1503 - Kristófer Kólumbus uppgötvaði Cayman-eyjar og nefndi þær Las Tortugas eftir sæskjaldbökum sem hann sá þar.
- 1535 - Jacques Cartier kannaði Nýfundnaland í leit sinni að norðvesturleiðinni.
- 1631 - Pappenheim og Tilly rændu og brenndu þýsku borgina Magdeburg í Þrjátíu ára stríðinu. Um 20.000 borgarbúar voru drepnir af herjum keisarans.
- 1796 - Napoléon Bonaparte vann sigur í orrustunni við Lodi.
- 1835 - Borgin Melbourne, höfuðborg ástralska fylkisins Victoria var stofnuð.
- 1871 - Fransk-prússneska stríðinu lauk með friðarsamningi í Frankfurt.
- 1922 - Kingmanrif var innlimað í Bandaríkin.
- 1933 - Í Þýskalandi stóðu nasistar fyrir bókabrennum í þeim tilgangi að ritskoða óæskileg ritverk.
- 1940 - Seinni heimsstyrjöldin: Breskt herlið gekk á land í Reykjavík.
- 1940 - Seinni heimsstyrjöldin: Þýskaland hóf innrás í Holland, Belgíu og Lúxemborg.
- 1940 - Winston Churchill varð forsætisráðherra Bretlands.
- 1941 - Rudolf Hess flaug frá Þýskalandi til Skotlands til að eiga frumkvæði að samningaviðræðum en var tekinn höndum þar.
- 1949 - Bonn varð höfuðborg Vestur-Þýskalands.
- 1981 - François Mitterrand var kjörinn forseti Frakklands.
- 1993 - Eldur kom upp í Kader leikfangaverksmiðjunni skammt utan Bangkok í Taílandi. 188 starfsmenn, mestmegnis ungar konur, létu lífið og a.m.k. 500 særðust.
- 1994 - Nelson Mandela varð forseti Suður-Afríku, fyrstur þeldökkra manna.
- 1997 - 1.560 manns fórust í jarðskjálfta nálægt Ardekul í Íran.
- 2003 - Alþingiskosningar voru haldnar þennan dag.
Fædd
- 1727 - Anne Turgot, franskur embættismaður og hagfræðingur (d. 1781)
- 1838 - John Wilkes Booth, leikari og morðingi Abraham Lincolns (d. 1865)
- 1878 - Gustav Stresemann, kanslari Þýskalands og verðlaunahafi friðarverðlauna Nóbels (d. 1929)
- 1957 - Sid Vicious, breskur bassaleikari The Sex Pistols (d. 1979)
- 1960 - Bono, írskur söngvari hljómsveitarinnar U2
- 1965 - Linda Evangelista, kanadísk fyrirsæta.
Dáin
- 1774 - Loðvík 15. Frakkakonungur
- 1818 - Paul Revere, bandarísk frelsishetja
- 1849 - Hokusai, japanskur listamaður (f. 1760).
- 1904 - Henry Morton Stanley, skoskur blaðamaður og landkönnuður (f. 1841).
- 1977 - Joan Crawford, bandarísk leikkona
- 1982 - Peter Weiss, þýskur rithöfundur og listmálari
- 1994 - John Wayne Gacy, bandarískur raðmorðingi
- 2002 - Yves Robert, franskur kvikmyndaleikstjóri