Rio de Janeiro
Útlit
Rio de Janeiro eða Ríó (portúgalska: Janúaráin) er stórborg í Brasilíu með yfir sex milljónir íbúa. Hún er önnur stærsta borg landsins á eftir São Paulo og var höfuðborg þess til 1960. Borgin er þekkt fyrir baðstrendur, eins og Copacapana og Ipanema, fallegt borgarstæði milli fjallanna við suðurströnd Guanabaraflóa, og glæsilega kjötkveðjuhátíð þar sem sambafélög keppa sín á milli í að setja upp sem glæsilegasta skrúðgöngu. Ríó er einnig þekkt fyrir stór fátækrahverfi, favelas, í hæðunum umhverfis borgina. Árið 2009 var borgin valin til þess að halda Ólympíuleikana árið 2016.
Borgarhlutar
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Rio de Janeiro.