Rio de Janeiro

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 26. mars 2015 kl. 03:50 eftir Dexbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. mars 2015 kl. 03:50 eftir Dexbot (spjall | framlög) (Removing Link FA template (handled by wikidata))
Rio de Janeiro

Rio de Janeiro eða Ríó (portúgalska Janúaráin) er stórborg í Brasilíu með yfir sex milljónir íbúa. Hún er önnur stærsta borg landsins á eftir São Paulo og var höfuðborg þess til 1960. Borgin er þekkt fyrir baðstrendur, eins og Copacapana og Ipanema, fallegt borgarstæði milli fjallanna við suðurströnd Guanabaraflóa, og glæsilega kjötkveðjuhátíð þar sem sambaskólar keppa sín á milli í að setja upp sem glæsilegasta skrúðgöngu. Ríó er einnig þekkt fyrir stór fátækrahverfi, favelas, í hæðunum umhverfis borgina. Árið 2009 var borgin valin til þess að halda Ólympíuleikana árið 2016.

Orðsifjar borgarheitis'ins eru þær að 'Rio' þýðir fljót, samanber 'River' á ensku, og 'Janeiro' táknar Janúar en evrópumenn slóu fyrst Gwanabara-flóa, þar sem samnefnd á rennur til sjávar, augum Janúar fyrsta 1502.

Borgarhlutar

  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Snið:Tengill GG